Myndasafn frá jólagleði MBA HÍ Alumni 2026
Jólagleði MBA HÍ Alumni 2026
var haldin 18. nóvember á Vinnustofu Kjarvals, í Fantasíu salnum
Árleg jólagleði MBA HÍ Alumni var að venju haldin á dögunum á Vinnustofu Kjarvals, í Fantasíu sal. Jólagleðin er haldin í samstarfi við Executive MBA í HÍ og er stærsti árlegi viðburður félagsins.
Mætingin var góð og samanstóð hópurinn af núverandi nemendum sem og útskrifuðum félagsmönnum úr árgöngum sem spanna langt tímabil. Við bjóðum nýnemana sérstaklega velkomna í ört vaxandi hóp félagsmanna.
Jóhanna Erla, formaður MBA HÍ Alumni, bauð fólk velkomið og sagði frá nýstofnaðri LinkedIn síðu félagsins. Jafnframt er í vinnslu ný og endurbætt vefsíða fyrir félagið þar sem m.a. má finna félagatalið.
Birna Rún Eiríksdóttir, leikkona, kitlaði hláturtaugar gesta með uppistandi en stemningin var að öðru leyti notaleg undir jólatónum. Gestir gæddu sér á léttum veitingum og efldu tengslin.
Takk fyrir komuna og við hlökkum til að sjá ykkur á fleiri viðburðum félagsins.
Gleðilega jólahátíð
Stjórn MBA HÍ Almuni
Ljósmyndari: Guðrún Hrönn Jónsdóttir









