Viðurkenning fyrir besta lokaverkefnið 2026
June 16, 2026
Valdís Fjölnisdóttir hlaut viðurkenningu
fyrir besta lokaverkefnið 2026

Í rökstuðningi fyrir valinu segir m.a. að viðfangsefnið sé mjög áhugavert. Verkefnið sé í takt við tíðarandann, mikilvægi starfa og byggingu svæða ekki bara með tilliti til búsetu starfsfólks, heldur svæðið í heild þegar kemur að nýsköpun, nýtingu og tengingu við umhverfið.
Í umsögn prófdómara kemur meðal annars fram að frumleiki, sjálfstæði og skapandi hugsun einkenni verkefnið ásamt djúpum skilningi og metnaði fyrir viðfangsefninu sem kemur skýrt fram.









