Golfmót MBA HÍ Alumni félagsins 2026
Haldið 13. ágúst hjá Golfklúbbi Brautarholts (GBR)

Sigurvegarar mótsins talið f.v.: Daníel Gunnarsson (maki Sigríðar Ingvarsdóttur), Sigríður Ingvarsdóttir (MBA 2007), Gyða Hlín Björnsdóttir (MBA 2014) og Guðmundur Jónsson (MBA 2017). Vinninga gáfu Íslandsbanki, Vís og TA sport.
Um 40 galvaskir MBA-arar mættu á Golfmót MBA HÍ Alumni sem fram fór þann 13. ágúst sl. en uppselt var í mótið. Veðurguðirnir voru svo sannarlega í stuði og skartaði Brautarholtið sínu fegursta. Spilað var texas scramble í 4ra manna liðum og sáust glæsilegir taktar og listilegar sveiflur. Eftir hring var boðið uppá bragðgóða kjúklingasúpu í glæsilegum nýjum golfskála golfklúbbs Brautarholts. Keppni reyndist ótrúlega jöfn og erfitt að skera úr um sigurvegara. Keppnin vannst á erni á 9. holu þar sem sigurliðið setti ofan af 80 metrum. Höggið náðist því miður ekki á filmu. Í sigurliðinu voru Sigríður Ingvarsdóttir, eiginmaður hennar Daníel Gunnarsson, Guðmundur Jónsson og Gyða Hlín Björnsdóttir. Þess má geta að þetta er annað árið í röð sem Sigríður stendur upp sem sigurvegari. Það var gaman að sjá svona marga taka þátt og við í stjórninni erum strax farin að hlakka til næsta móts.











