Sumargleði félagsins var haldin fimmtudaginn 28. maí 2026 á Vinnustofu Kjarvals. Boðið var upp á drykki í góðri hamingjustund og DJ Hlynur hélt uppi stemningunni.
Allir með MBA gráðu frá Háskóla Íslands og nemendur sem stunda námið geta sótt um aðild að félaginu.
Þeir sem eru með viðurkenndar MBA gráður frá erlendum háskólum geta einnig sótt um aðild.
HLUTVERK
Hlutverk félagsins er að stuðla að faglegum, félagslegum og óbeinum efnahagslegum ávinningi þeirra sem útskrifast hafa með MBA – prófgráðu og að styðja við áframhaldandi þróun og framgöngu námsins við Háskóla Íslands.